Kynningarfundir kjarasamnings 2024

Boðað er til kynningarfunda félagsmanna FFR á nýjum kjarasamningi 2024 með eftirfarandi hætti.

Föstudaginn 10. maí
Kl.13:00 í þjónustuhúsi flugvallarþjónustunnar, 2. hæð
Kl.15:00 á Eiríksstöðum, 3. hæð í flugstöð
Kl.17:30 í húsi BSRB á Grettisgötu 89

Laugardaginn 11. maí
Kl.11:00 á Egilsstöðum
Kl.16:00 á Akureyri

Endilega látið félagsfólk vita og ekki hika við að senda okkur póst á stjorn@flugstarfsmenn.is ef ykkur vantar upplýsingar fyrir atkvæðagreiðslu.

Félagsfólk okkar á öðrum stöðum landsins fá kynningarfundi í gegnum síma eftir samkomulagi og í samstarfi við okkur eftir því sem hentar. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst með tíma sem hentar þeim starfsstöðvum.

Við erum enn að vinna í því að skipuleggja rafræna atkvæðagreiðslu um kjarasamninginn og þar sem frídagur í dag setur svolítið strik í reikninginn höfum við fyrirvara um mögulegar breytingar en fyrstu drög segja að rafræn atkvæðagreiðsla hefjist næsta mánudag kl. 16:00 og henni muni ljúka kl. 16:00 næsta fimmtudag. Endanlegt skipulag verður auglýst á morgun og mun einnig liggja klárt fyrir á kynningarfundunum.

Kær kveðja, Samninganefnd FFR